18. maí, 2021, fór gjörningalistaverkið MOM air á uppboð hjá Gallerí Fold. Uppboði stendur í 15 daga og lýkur 2. júní 2021.
Þetta er í fyrsta skipti sem Gallerí Fold setur gjörningalist á söluskrá og að öllum líkindum fyrsta sinn sem listaverk af þessu tagi er selt á heimsvísu. Af þeim orsökum er verðmat skráð óþekkt.
Uppboðið: https://www.myndlist.is/auction/WebAuctionItems.aspx?ItemID=30852
MOM air
Þann 5. nóvember, 2020, stofnaði listamaðurinn Odee nýtt ofur-lággjalda flugfélag í miðjum covid-19 heimsfaraldri sem nefndist MOM air. Í kjölfarið sendi hann fréttatilkynningar á miðla um allan heim. Á aðeins örfáum dögum hafði hið nýja flugfélag gripið fyrirsagnir frá helstu flugiðnaðar- og ferðasíðum heims eins og Lonely Planet og Simple Flying. CNN sagði hið framsækna nýja flugfélag gæti jafnvel spáð fyrir um framtíð flugiðnaðarins.
Flugfélagið bauð upp á tvö frí sæti í hverri vél, covid og covid frí flug, valkvæman klósettpappír/ björgunarvesti undir sætum, öfluga jafnréttisstefnu, umhverfisvæn flug og sveigjanlegt bókunarkerfi án aukakostnaðar.
MOM air vakti ekki síður athygli fyrir frakka markaðssetningu sem hafði meint líkindi við hið fallna flugfélag WOW air. Lögfræðingur WOW air sagði opinberlega að MOM air væri í klárlega að brjóta á höfundarrétti WOW air.
En hið nýja ofur-lággjalda flugfélag MOM air var síðar tilkynnt sem gjörningur og partur af lokaverkefni fyrir Listaháskóla Íslands. Fólk allstaðar að úr heiminum hafði óaðvitandi tekið þátt í listgjörningnum á einn eða annan hátt. Með yfir 70 umfjallanir á heimsvísu á fjölmörgum tungumálum öðlaðist MOM air heimsfrægð enda náði gjörningurinn til milljóna manna og sneri veruleika þeirra á hvolf.

Eignarhald gjörnings
Eignarhald gjörningsins verður skrásett með stafrænu upprunavottorði frá listamanninum, en þetta vottorð verður skrásett í gegn um fyrirtækið Verisart.
Nýr eigandi mun í þessu tilfelli eignast listaverkið MOM air, 2020 eftir Odee sem er bæði gjörninga og hugmyndalist (performance and concept art). Gjörningurinn hófst í nóvember 2020, og lifir enn í samfélagslegu rými.
Eignarhald yfir gjörningnum felur ekki í sér höfundarrétt frekar en eignarskipti á hefbundnum listaverkum (málvek, skúlptúr osf.). Hins vegar þyrftu söfn eða aðrir sem hefðu áhuga á að sýna MOM air að fá leyfi frá eiganda verksins, og fá það að láni. Aðeins eigandi getur með réttu sagst vera eigandi verksins.
Eiganda verksins eru engar skorður settar á framsetningu þess. Sem dæmi væri hægt að hengja upp útprentað vottorð við stóran auðan vegg, eða hafa vottorðið við hlið minja frá gjörningnum eins og t.d. veggspjald eða flugmiða.

Bálkakeðjan (blockchain)
Vottorðin skrásetjast á bálkakeðjuna (blockchain), sem er dreifð og tímaröðuð færsluskrá aðgengileg öllum og geymd í heild sinni stafrænt á netinu, sama aðferð og notuð er við rafmynt á borð við Bitcoin. Þessi tækni tryggir að ekki sé hægt að falsa vottorð, afrita eða breyta. Aðeins listamaðurinn sjálfur getur gefið út upprunavottorð. Eignarhald getur aðeins setið hjá einum einstaklingi/stofnun fyrir hvert vottorð. Vottorðið sýnir allar breytingar á eignarhaldi frá stofnun þess.
Fjölmargir listamenn um heim allan nýta sér þessa tækni til þess að skrásetja rafræn upprunavottorð á listaverkum sínum. Má þar nefna heimsþekkta listamenn eins og Trevor Jones, Philip Colbert og Ai Weiwei.
Bálkakeðjan er opinber og því getur hver sem er leitað uppi vottorð þetta og staðfest núverandi eignaraðild.

Gjörva
Samhliða uppboði listamannsins Odee á MOM air hjá Gallerí Fold, hefur hann í samstarfi við aðra gjörningalistamenn stofnað nýlistafélagið Gjörvu. Þetta félag hefur að markmiði að sameina listamenn sem hafa áhuga á að skrásetja eignarhald á gjörningum sínum og varðveita með faglegum hætti. Þannig mun Gjörva í heild einsetja sér að móta staðal fyrir þessa nýju tegund listar til framtíðar.
Hlekkir
MOM air vottorðið – https://verisart.com/works/odee-154e55c0-3164-4166-93eb-78b9cb19e6ba
Heimasíða MOM air – https://www.momair.is
Heimasíða Gjörvu – https://www.gjorva.is
Heimasíða Gallerí Fold- https://www.myndlist.is
Bæklingur fyrir MOM air uppboðið – https://issuu.com/odeeart/docs/mom_air_2020
ODEE á Instagram – https://www.instagram.com/odeeart/

